19.11.2008 | 19:30
thorvaldsenfélagið og jólaskortin þeirra
10.11.2008 Tvær milljónir til styrktar málefnum barna og unglinga með sykursýki |
Thorvaldsensfélagið hefur fært Thorvaldsenssjóðnum, sem er sjóður til styrktar málefnum barna og unglinga með sykursýki, gjöf að upphæð 2 milljónir króna. Sjóðurinn var stofnaður í nóvember 2003 til styrktar málefnum barna og unglinga með sykursýki. Gjöfin var afhent 10. nóvember 2008. Aðal styrktaraðilar og stofnendur sjóðsins eru konur í Thorvaldsensfélaginu. Fyrir tilstilli þeirra framlags hefur reynst mögulegt að styrkja viðveru lækna og hjúkrunarfræðinga í sumarbúðum barna og unglinga með sykursýki sem haldnar hafa verið árlega sl. 5 ár. Enn fremur hefur sjóðurinn styrkt rannsóknir á gæðum meðferðar við göngudeild barnaspítalans og nú nýlega öflugt framtak sem miðar að því að gera árangur meðferðar í sykurstjórnun enn betri. |
ég er í stjórn Dropans, styrktarfélags barna með sykursýki og mig langar að þakka fyrir mig og mína. og auðvita hvetja alla til að kaupa kortin þeirra.
hérna er linkur á siðunna hjá þessu frábæra félagi http://thorvaldsens.is/
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.